a, upprifjun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Eingöngu fyrir þá sem fengu D á grunnskólaprófi.
Í áfanganum er farið í forgangsröð aðgerða, almenn brot, bókstafareikning, jöfnur, prósentur og hnitakerfi. Stefnt er að því að byggja upp jákvætt viðhorf og efla sjálfstraust nemenda hvað varðar stærðfræði.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum um talnameðferð
- aðgerðum á heilum tölum, forgangsröð aðgerða og notkun sviga
- styttingu og lengingu brota, samnefnara, samlagningu brota og margföldun brota
- öllum algengum prósentureikningi
- undirstöðuatriðum algebru og hvernig bókstafir eru notaðir til þess að tákna stærðir
- rétthyrndu hnitakerfi í fleti
Leikniviðmið
- setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
- nota vasareikni við lausn viðfangsefna
- nota gagnvirk forrit til þjálfunar í reikningi
- nota stærðfræðileg vinnubrögð
Hæfnisviðmið
- fást við stærðfræðileg viðfangsefni dagslegs lífs
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
- greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
Nánari upplýsingar á námskrá.is