Siðaskipti til nýrómantíkur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2ES05
Nemendur kynnast bókmenntasögu og bókmenntastefnum í gegnum mismunandi texta, ljóð, smásögur, skáldsögur og fræðitexta. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun.
Þekkingarviðmið
- mismunandi tegundum bókmenntatexta
- stefnum í íslenskum bókmenntum á tímabilinu
- orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
- ritgerðasmíð og heimildavinnu
Leikniviðmið
- skrifa og ganga frá heimildaritgerð
- skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið
- flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málum
- lesa ýmsar gerðir ritaðs máls að fornu sér til gagns og gamans
Hæfnisviðmið
- beita málinu á árangursríkan og viðeigandi hátt í ræðu og riti
- draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is