stríðssaga
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2MS05
Fjallað er um stríðsátök í sögunni, orsakir stríða, afleiðingar þeirra, hugmyndafræðin sem liggur að baki þegar friður tapast og átök hefjast. Kenningar um mannlega náttúru í samhengi við vopnuð átök koma við sögu. Helstu stríðsátök sögunnar er á dagskrá, þróun herfræði og vopna og hvernig skoðanir á stríðsátökum breytast er nær dregur samtíma. Sjónum verður beint að konum í stríði, andófi gegn stríði og afstöðu almennings. Yfirstandandi stríðsátök hverju sinni eru eftir atvikum tengd viðfangsefninu.
Þekkingarviðmið
- sögu stríðsátaka
- hernaðartækni og þróun hennar
- helstu tegundum stríða
- afleiðingum stríða
- friðarferli að stríði loknu
Leikniviðmið
- greina hvað liggur að baki stríðum
- greina milli ólíkra stríðsátaka
- fást við frumheimildir og greina þær
- vinna með heimildir í APA kerfinu
Hæfnisviðmið
- greina orsakir og afleiðingar stríðsaátaka
- tengja saman stríðsátök og stjórnmál
- velta fyrir sér málstað stríðs, getur stríð verið réttlætanlegt
- reyna að greina á milli áróðurs og staðreynda, sbr. ,,fyrsta fórnarlamb stríðs er sannleikurinn”
Nánari upplýsingar á námskrá.is