FÉLA3HÞ05 - Hnattvæðing og þróunarlönd

hnattvæðing og þróunarlönd

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
Í áfanganum verður fjallað um hnattvæðingu og þróunarlönd. Hvað eru þróunarlönd og hver eru helstu einkenni þeirra? Hvar eru þau og hver er staða þeirra? Einnig verður hugtakið hnattvæðing skilgreint, kostir hnattvæðingar og gallar ræddir. Fjallað verður um orsakir og afleiðingar fátæktar í þróunarlöndum. Þróunarlönd og þróuð lönd verða borin saman og samskipti þeirra skoðuð. Þróunarhjálp og þróunarsamvinna verður skilgreind í sögulegu ljósi. Kynntar verða helstu kenningar um þróun og þróunarsamvinnu.

Þekkingarviðmið

  • þróunarlöndum, sögu þeirra og landafræði
  • hugtakinu hnattvæðingu, kostum hennar og göllum
  • áhrifum þróunarsamvinnu á þróunarlönd
  • helstu kenningum um þróunarsamvinnu

Leikniviðmið

  • bera saman ólík þróunarlönd og skoða stöðu þeirra í samanburði við þróuð lönd
  • vinna með tölfræðilegar upplýsingar og túlkun þeirra
  • nota helstu kenningar sem tengjast þróunarsamvinnu
  • vinna með heimildir og skrá þær með hjálp APA kerfisins
  • miðla fræðilegum texta á fjölbreyttan og skilmerkilegan hátt

Hæfnisviðmið

  • setja sig í spor íbúa á framandi slóðum
  • bera saman stöðu Íslands og þróunarlanda
  • vinna með upplýsingar á gagnrýninn hátt
  • geta fylgst með þróun mála á sviði þróunarlanda og rætt þau á upplýstan hátt
  • geta tengt umfjöllun (fjölmiðla) við málefni líðandi stundar
Nánari upplýsingar á námskrá.is