afbrotafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
Aðalumfjöllunarefnið eru afbrot. Farið verður í hugtakið frávik og fjallað um ólíkar tegundir frávika. Spurningunni af hverju einstaklingar fremja afbrot verður velt upp. Hvaða brot eru algengust og hvaða áhrif refsingar hafa á afbrot. Mismunandi tegundir afbrota verða ræddar. Kenningar í afbrotafræði eru notaðar til að auka skilning á viðfangsefninu. Fjallað verður um afbrot í sögulegu samhengi, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Viðmið og gildi ólíkra þjóðfélaga til afbrota tekin fyrir.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum afbrotafræðinnar
- afbrotaflokkum og tegundum refsinga
- helstu kenningum í afbrotafræði
- afleiðingum og kostnaði samfélaga vegna afbrota
- völdum rannsóknarniðurstöðum innan afbrotafræðinnar
- tengslum afbrotafræði við aðrar greinar félagsvísindanna
Leikniviðmið
- beita vinnubrögðum félagsvísinda
- miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan og skipulegan hátt
- vinna með heimildir og að nota APA kerfið
- lesa og túlka fræðilegar rannsóknarniðurstöður
- afla upplýsinga sem tengjast afbrotum og geta greint þær
Hæfnisviðmið
- greina eðli ólíkra afbrota
- rökræða um málefni tengd afbrotafræði
- leggja sitt af mörkum til að vinna gegn fordómafullri umræðu tengdri afbrotum á Íslandi
- gera greinarmun á aðstæðum á Íslandi og erlendis
- setja sig í spor frávika til að öðlast skilning á mismunandi aðstæðum fólks
Nánari upplýsingar á námskrá.is