lokaverkefni
Einingafjöldi: 7
Þrep: 3
Forkröfur:
30 e í samfélagsgreinum
og STÆR3TL05
Hugmyndafræðin að baki áfanganum er að gefa nemendum tækifæri að gera rannsóknir í félagsvísindum. Nemendur hanna og framkvæma bæði eigindlega og megindlega rannsókn. Síðan skila þeir ítarlegri skýrslu sem lýtur reglum um heimildavinnu. Stefnt er að því að nemendur vinni þetta frá hugmynd til lokaafurðar og nýti sér það efni sem þeir hafa lært í námi sínu. Öll sú vinna sem fram er í nánu samstarfi við hina ýmsu kennara skólans.
Þekkingarviðmið
- aðferðafræði félagsvísinda
- gerð megindlegra og eigindlegra rannsókna, kostum aðferðanna og göllum þeirra
- hugtökum og kenningum í félagsvísindum
- sögu vísindakenninga, notkun og misnotkun
- ritun heimildaritgerða
Leikniviðmið
- vinna eigindlega og megindlega rannsókn
- nota heimildir á skipulegan hátt
- átta sig á siðferðilegum takmörkunum vísinda og rannsókna
- skrifa heimildaritgerð
Hæfnisviðmið
- meta upplýsingar á gagnrýninn hátt
- hanna rannsókn frá grunni til lokaafurðar
- geta beitt hugtökum félagsvísinda á félagsleg, söguleg og siðferðileg álitamál
- sjá samhengi námsefnis undanfarinna anna og samspil mismunandi námsgreina
- skrifa heimildaritgerð byggða á eigin rannsóknum
Nánari upplýsingar á námskrá.is