She Runs
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Markmið áfangans er að veita nemendum tækifæri til að þjálfa sig í hlutverki leiðtogans byggt á grundvelli íþrótta. Áfanginn er ætlaður þeim sem vilja öðlast þjálfun í verkefnastjórn og hafa vilja til að efla leiðtogahæfni sína. Nemendur fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast margskonar menningu, menntun og nýsköpun. Nemendur taka þátt í stóru verkefni á vegum ISF (International School Sport Federation).
Þekkingarviðmið
- leiðtogahlutverkinu
- ólíkum hlutverkum leiðtoga
- sínum eigin styrkleikum og veikleikum
- gagnrýnni hugsun
- mikilvægi jafnréttis
- mikilvægi á þátttöku kvenna í stjórnun og leiðtogastörfum
- mismunandi aðferðum í leiðtogaþjálfun
Leikniviðmið
- taka þátt í fjölbreyttum verkefnum
- leiðbeina
- skipuleggja viðburð
- framkvæma viðburð
Hæfnisviðmið
- taka að sér ólík verkefni
- leiðbeina hópum og stýra verkefnum
- bjóða sig fram í fjölbreytt leiðtogahlutverk
Nánari upplýsingar á námskrá.is