Jóga
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er auka áhuga og getu nemandans svo hann geti nýtt sér hatha jóga sér til heilsubótar og ánægju. Í þessum áfanga fer kennslan fram í formi æfinga þar sem farið er yfir 84 grunnlíkamsstöður í hatha jóga. Þátttaka nemandans á jafnframt að efla styrk, þrek- og þol með fjölbreyttum þjálfunaraðferðum. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega, andlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
Þekkingarviðmið
- grunntækni íþróttarinnar
- grunnæfingum til að bæta sig í íþróttinni
- ýmsum aðferðum við líkamsþjálfun
- áhrifum líkams- og heilsuræktar fyrir andlega og líkamlega vellíðan
- jógastöðum, öndun og slökun
Leikniviðmið
- stunda jóga sér til heilsubótar
- nýta sér öndun og slökun í daglegu lífi
- tileinka sér helstu grunntækni íþróttarinnar
- beita félagsfærni
- þekkja og meta eigin getu og takmarkanir
Hæfnisviðmið
- átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan
- bæta heilsufar sitt
- bæta sjálfstraust sitt
- fá andlega og líkamlega útrás
- nýta sér jóga til heilsubótar í daglegu líf
- efla með sér meðvitund um augnablikið
- skapa jafnvægi í likama, tilfinningum og huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is