Starfsþjálfun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRF2þj05
Markmið áfangans er að undirbúa nemendur undir þjálfun barna og ungmenna. Starfið getur verið tengt fjölbreyttri þjálfun í íþróttagrein hjá íþróttafélagi eða starfi í íþrótta- og frístundaskóla íþróttafélags eða leikskóla. Nemandinn verður látinn setja upp æfingaáætlun með íþróttakennara/þjálfara og kenna eftir þeirri áætlun. Æfingaáætlunin og kennslan er síðan metin. Nemendur þurfa að skila dagbók ásamt umsögn frá leiðsagnarkennara.
Þekkingarviðmið
- mismunandi þjálfunar- og kennsluaðferðum
- hvernig á að leiðbeina til að auka þekkingu og getu
- hlutverki þjálfara/kennara
- skipulagningu þjálfunar/kennslu
- mismunandi aðferðum við þjálfun/kennslu
- skipulagningu þjálfunar/kennslu
- mismunandi aðferðum við þjálfun/kennslu
Leikniviðmið
- beita mismunandi þjálfunar- og kennsluaðferðum
- leiðbeina
- skipuleggja þjálfun
- nýta sér upplýsingatækni í skipulagningu þjálfunar
Hæfnisviðmið
- skipuleggja æfingar
- geta gert æfingaáætlun
- stjórna hópi
- nýta sér upplýsingatækni í skipulagningu þjálfunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is