Tómstundir og leikir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2þj05
Áfanginn er hvort tveggja bóklegur og verklegur. Markmiðið er að gefa nemendum tækifæri til að kynnast þeim möguleikum sem eru í boði innan tómstundastarfsins og undirbúa þau fyrir áframhaldandi nám í tómstundafræðum. Einnig að kenna nemendum fjölbreytta leiki og líkamsþjálfun sem henta mismunandi aldurshópum með það í huga að nemendur geti nýtt sér þann möguleika í kennslu og þjálfun. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna, skipuleggja og sinna tómstundastarfi.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi tómstundastarfs fyrir samfélagið
- fjölbreyttu tómstundastarfi
- mikilvægi tómstundastarfs til að efla andlegan og félagslegan þroska
- hinum ýmsu leikjum
- mikilvægi leikja og líkamsþjálfunar til að efla tilfinninga- og félagsþroska barna og unglinga
Leikniviðmið
- afla sér upplýsinga um mismunandi tómstundastarf
- nýta sér og kynna fyrir öðrum mismunandi tómstundastarf
- stýra mismunandi hópum í leik og tómstundastarfi
- undirbúa og útskýra ýmsar útfærslur af leikjum
- greina vandamál og finna lausnir við ýmsar aðstæður
- nýta sér mismunandi aðstæður til að efla tilfinninga- og félagsþroska barna
Hæfnisviðmið
- efla leiðtogahæfni sína
- skipuleggja æfingar
- beita grundvallaraðferðum í forvörnum og eineltismálum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga ásamt því að leiðbeina þeim
- taka að sér ýmis verkefni sem snúa að tómstundastarfi eða félagsstarfi hjá skólum og/eða íþróttafélögum
- meta eigin frammistöðu og vinnuframlag sem og annarra á gagnrýninn hátt
- vera betur undirbúin fyrir háskólanám í tómstundafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is