Knattspyrna og handbolti
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2þj05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu og handbolta. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna, skipuleggja og sinna æfingum í knattspyrnu og handbolta.
Þekkingarviðmið
- leikreglum
- leik- og hreyfifræði
- hvernig á að leiðbeina börnum
- kennslu tækniæfinga
- skipulagningu þjálfunar
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum
Leikniviðmið
- leiðbeina byrjendum og öðrum
- nota íþróttirnar sér til heilsubótar
- halda mót fyrir smærri hópa
- taka þátt í keppni
- greina vandamál og finna lausnir
- nota og útskýra mismunandi leikjafyrirkomulag
- nota og útskýra fyrir öðrum ýmsa leiki
Hæfnisviðmið
- bæta við eigið getustig
- skipuleggja æfingar
- stjórna hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- sækja um stöðu aðstoðarþjálfara hjá íþróttafélögum
Nánari upplýsingar á námskrá.is