Badminton og golf
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2þj05
Áfanginn er hvort tveggja bóklegur og verklegur. Markmiðið er að kenna grunnþætti, tækni og leikfræði í golf- og badmintoníþróttinni. Í lok áfangans á nemandi að geta útskýrt fyrir óreyndum spilara grip, helstu grunnhögg ásamt því að stýra æfingum fyrir mismunandi getustig. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna og skipuleggja æfingar fyrir iðkendur í badminton og golfi.
Þekkingarviðmið
- gripi
- tækniæfingum
- leikfræði íþróttanna
- samsettum æfingum þar sem farið er úr einföldum útfærslum yfir í flóknari
- hreyfifræði íþróttanna
- mismunandi mótafyrirkomulagi
- æfingum til að auka ákefð
- algengum villum við framkvæmd högga
- nauðsynlegum íþróttabúnaði
Leikniviðmið
- útfæra helstu högg
- nota íþróttirnar sér til heilsubótar
- leiðbeina öðrum
- halda mót fyrir smærri hópa
- taka þátt í keppni
- greina vandamál og finna lausnir
- nota og útskýra mismunandi leikjafyrirkomulag
- nota og útskýra fyrir öðrum mismunandi leiki
Hæfnisviðmið
- bæta sig í íþróttageinunum
- skipuleggja æfingar
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga ásamt því að leiðbeina þeim
- sækja um stöðu aðstoðarþjálfara hjá íþróttafélagi
- taka þátt í keppni sem hæfir þeirra getu
- leiðbeina öðrum um val á mismunandi búnaði
- taka að sér ýmis verkefni við mótahald hjá skólum og/eða íþróttafélögum
- vera vel undirbúinn fyrir háskólanám í íþróttafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is