Lífeðlisfræði og skyndihjálp
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2þj05
Í áfanganum er fjallað um starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis, lungna og taugakerfis og gerð vöðvaþráða. Einnig er fjallað um þol, kraft, hraða, liðleika, tækniþjálfun og markmiðsáætlanir. Farið er í gerð þjálfunaráætlana til lengri og skemmri tíma. Í áfanganum er fjallað um helstu grunnþætti íþróttasálfræðinnar. Skoðuð eru ýmis áreiti sem hafa áhrif á getu íþróttamanna. Fjallað er um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi.Nemendur læra undirstöðuatriði skyndihjálpar þ.á.m.. grunnendurlífgun og notkun hjartastuðtækis, læsta hliðarlegu, að greina innvortis og útvortis áverka, að bregðast við bráðum veikindum og flutning slasaðra. Áfanginn er að mestu leiti bóklegur.
Þekkingarviðmið
- skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma
- mikilvægi góðrar þekkingar á tækni og leikfræði íþróttagreina
- helstu þjálfunaraðferðum
- áhrifum þjálfunar á hjarta og blóðrásarkerfi
- muninum á einstaklings- og hópíþróttum og áhrifum félagslegra þátta á íþróttamanninn
- skrefum skyndihjálparkeðjunnar
- helstu áverkaeinkennum og réttum viðbrögðum við þeim
- helstu einkennum bráðra veikinda og réttum viðbrögðum við þeim
Leikniviðmið
- skipuleggja grunnþjálfun hópa og einstaklinga
- vinna að auknu sjálfstrausti og bættri sjálfsmynd í því skyni að bæta árangur
- framkvæma mælingar á þjálfunarástandi
- meta líkamsástand út frá lífeðlisfræðilegum þáttum
- sýna rétt viðbrögð við slysum
- meta ástand sjúkra og slasaðra
- veita skyndihjálp við slys og bráð veikindi
Hæfnisviðmið
- starfa með börnum og unglingum við íþróttaiðkun út frá líffræðilegum og sálfræðilegum forsendum
- veita sálræna skyndihjálp
- endurlífga og beita sjálfvirku stuðtæki í neyðartilfellum
- binda um sár og flytja sjúkling til vegna yfirvofandi hættu
- setja sjúkling í læsta hliðarlegu og tryggja öryggi hans
Nánari upplýsingar á námskrá.is