Lokaáfangi seinni
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Allir áfangar á fatahönnunarsviði.
Lokaáfangar í fatahönnun eru tveir og FATA3ls05 er sá seinni Nemendur halda áfram að vinna í hönnunarverkefni sínu úr FATA3lf05. Nemendur skila allri vinnu sem tengist hönnunarverkefninu; hugmyndavinna, dagbók, vinnuskýrsla, ferilmappa, snið, lokaafurðir og taka þátt í lokasýningu.
Þekkingarviðmið
- hvað fólgið sé í sjálfstæðum, faglegum og skapandi vinnubrögðum varðandi framkvæmd verksins í öllu vinnuferlinu.
- gerð vinnuáætlana, greiningu og endurmati verkþátta.
- mikilvægi þess að rýna í eigið verk og annarra á uppbyggilegan hátt.
- mikilvægi þess að geta komið vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta.
Leikniviðmið
- taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval.
- sýna sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð varðandi framkvæmd verksins.
- skilgreina forsendur fyrir hugmyndum, framkvæmd og framvindu verksins.
- setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti.
- endurmeta hugmyndir sínar og framkvæmd verksins í öllu vinnuferlinu.
- rýna í eigið verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega.
- koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta.
Hæfnisviðmið
- tileinka sér sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð sem er metið með verkefnum.
- skilgreina forsendur, greina og endurmeta verkþætti sem er metið með verkefnum.
- koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta sem er metið með verkefnum og munnlegri framsögn.
- útbúa ferilmöppu sem nýst getur sem umsókn í nám og störf sem er metið með verkefnum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is