ENSK3HR05 - Heimildavinna og ritun

heimildavinna, ritgerðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK2KK05
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að kenna nemendum að beita þeim rithefðum sem notaðar eru í enskumælandi löndum og farið í þætti eins og inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag. Nemendur þjálfist í að leita heimilda, t.d. á Netinu, og vinna úr þeim samkvæmt APA-kerfinu.

Þekkingarviðmið

  • formlegum og fræðilegum orðaforða sem tengist ritun, orðstofnum og uppruna þeirra
  • hefðum sem eiga við um talað og ritað mál, t.d. mismunandi málsnið

Leikniviðmið

  • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á
  • tjá sig af öryggi um margvísleg málefni

Hæfnisviðmið

  • beita rithefðum sem við eiga í textasmíð,
  • skrifa gagnorða og skilmerkilega texta sem taka mið af því hver lesandinn er,
  • skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin,
  • geta lagt gagnrýnið mat á texta,
Nánari upplýsingar á námskrá.is