bókmenntir og kvikmyndir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SPÆN2LE05
Í þessum áfanga er lögð áhersla á lestur texta af ýmsum toga með það að markmiði að nemendur kynnist sögu, bókmenntum og menningu Spánar ásamt því að byggja upp orðaforða og efla lesskilning. Nemendur kynnast jafnframt spænskri kvikmyndagerð. Áhersla er lögð á þemavinnu, munnlegar kynningar og ýmis konar hlustunar-, ritunar- og talæfingar til að styrkja og bæta við þann grunn sem þegar hefur verið lagður. Í þessum áfanga er stefnt að ferð til Spánar ef áhugi og aðstæður leyfa.
Þekkingarviðmið
- fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, bæði munnlega og skriflega
- grunnatriðum spænsks málkerfis og helstu hefðum í ritun bæði óformlegra og formlegra sendibréfa
- þekktum verkum og nöfnum nokkurra listamanna hins spænskumælandi heims, einkum Spánar
Leikniviðmið
- skilja megininntak samræðna og fjölmiðlaefnis, einkum um kunnugleg umræðuefni
- taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi af meira öryggi en áður
- lesa margs konar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er
- taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og af meira öryggi en áður og beita málfari við hæfi
- tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
- skrifa samfellda texta af ýmsum toga, s.s. útdrætti, endursagnir, frásagnir og formleg jafnt sem óformleg sendibréf
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina megininntak talaðs máls af ýmsum toga, einkum um kunnugleg umræðuefni
- tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
- taka þátt í skoðanaskiptum af meira öryggi en áður og nota til þess viðeigandi orðaforða
- tjá sig á skýran hátt í ræðu og riti og beita tungumálinu af nákvæmni við ýmiss konar aðstæður
Nánari upplýsingar á námskrá.is