parís
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN1FR05
París og frönsk menning eru aðalviðfangsefni áfangans. Nemendur fræðast um sögu, menningu, daglegt líf og helstu kennileiti borgarinnar. Æfð eru dagleg samskipti á frönsku, nemendur afla sér þekkingar og hagnýtra upplýsinga og vinna menningartengd verkefni við undirbúning nokkurra daga ferðar til Parísar. Á meðan á ferð stendur afla nemendur sér upplýsinga fyrir verkefni sín um leið og þeir skoða borgina og kynnast mannlífi hennar. Eftir heimkomu er unnið úr þessum upplýsingum með skriflegum og munnlegum verkefnum.
Þekkingarviðmið
- ýmsum þáttum í sögu og menningu Parísarborgar.
- staðháttum, skipulagi og helstu kennileitum Parísarborgar.
- mannlífi Parísar; daglegu lífi Parísarbúa, samgöngum og atvinnulífi.
- grunnorðaforða sem nýtist í algengum aðstæðum daglegs lífs í franskri stórborg.
- sérhæfðari orðaforða í samræmi við hæfni- og leiknimarkmið áfangans.
Leikniviðmið
- afla sér hagnýtra upplýsinga af ýmsum toga og vinna úr þeim á sjálfstæðan hátt.
- skilja talað mál kennara og annarra nemenda í hópnum.
- skilja mismunandi texta um sögu og menningu Parísar og geta greint aðalatriði þeirra.
- skilja talað mál í algengum aðstæðum daglegs lífs.
- beita viðeigandi kurteisisvenjum og málvenjum við mismunandi aðstæður.
- lýsa völdum minnismerkjum og stöðum í París.
- segja frá sjálfum sér og athöfnum sínum í nútíð og þátíð.
- rita frásagnir í þátíð.
Hæfnisviðmið
- miðla upplýsingum til annarra nemenda í hópnum munnlega og skriflega.
- taka þátt í samræðum við íbúa um daginn og veginn.
- leita upplýsinga og að þjónustu með samskiptum við íbúa.
- afla sér upplýsinga á vettvangi um sérhæfð málefni, t.d. með viðtölum við íbúa.
- vera fær um að lesa, túlka og færa sér í nyt ýmsar nauðsynlegar upplýsingar í franskri stórborg.
- ræða við íbúa um eigin hagi, tilgang ferðar, land sitt og þjóð.
- gera grein fyrir reynslu af ferðinni á ýmsan hátt s.s. skriflega og munnlega.
Nánari upplýsingar á námskrá.is