hagnýt, stærðfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Fyrir þá sem fengu C á grunnskólaprófi eða hafa lokið STÆR1UA05.
Áfanginn er fyrir alla nemendur utan þeirra sem eru á náttúrufræðibraut og viðskiptabraut. Í áfanganum er lagður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði. Farið verður í grunnþætti stærðfræðinnar, almennan talnareikning, hlutfalla- og prósentureikning, jöfnur og algebru, flatarmál, rúmmál, einslögun og hlutfallskvarða og tölfræði. Stöðug þjálfun í táknmáli stærðfræðinnar og áhersla lögð á framsetningu og rökstuðning.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum reiknings með heilum tölum og brotum
- undirstöðuatriðum algebru
- hlutfallshugtakinu
- undirstöðuatriðum rúmfræði s.s flatarmál, rúmmáli, mælikvörðum og hlutföllum
- föllum og gröfum þeirra
- undirstöðuatriðum tölfræðinnar
Leikniviðmið
- gera munnlega eða skriflega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
- nota reiknivél sem hjálpartæki við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
- kunni að skipta stærðum eftir hlutföllum og geti leyst öll algeng dæmi um prósentureikning
- vinna með lýsandi tölfræði s.s. miðsækni og tíðni
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
- beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geta útskýrt aðferðir sínar
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
- geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
- beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
Nánari upplýsingar á námskrá.is