Inngangur að náttúrufræði
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Áfanginn fjallar um ýmis viðfangsefni náttúrufræða. Honum er m.a. ætlað að efla þekkingu nemandans á upphafi alheims og stöðu jarðar í sólkerfinu. Nemendur kynnast stjörnu- og veðurfræði. Áhersla er lögð á að nemendur fræðist um íslenska náttúru og einkenni hennar, s.s. lífríki landsins og fjölbreytni þess. Fæðukeðjur eru útskýrðar og fjallað um nýtingu lands og sjávar. Fjallað er um dýr sem lifa á Íslandi, bæði villt dýr sem og húsdýr.
Þekkingarviðmið
- tilurð alheimsins út frá stjarnfræðilegum vísindum
- almennum hugtökum stjörnufræðinnar
- almennum hugtökum veðurfræðinnar
- áhrifum veðurfars á lífríki jarðar
- samspili manns og náttúru
- fjölbreytileika og einkennum íslenskrar náttúru
- einkennum íslenskra húsdýra, afkvæmum og fæðu, nytjum og afurðum
- villtum dýrum í náttúru Íslands, einkennum og lifnaðarháttum þeirra
- fuglum í náttúru Íslands
Leikniviðmið
- greina stöðu jarðar í sólkerfi okkar
- telja upp helstu stjörnur í sólkerfi okkar
- lesa veðurkort
- skýra hringrás vatns, kolefnis og súrefnis í vistkerfi jarðarinnar
- nota einföld hugtök úr náttúruvísindum
- greina helstu tegundir íslenskra fugla
Hæfnisviðmið
- vera meðvitaður um sérstöðu jarðarinnar í sólkerfinu
- leita sér upplýsinga um veðurfar sem koma að gagni í daglegu lífi
- taka upplýstar ákvarðanir og ábyrgð á eigin hegðun í samspili við náttúruna
- þekkja afurðir íslenskra húsdýra sem hluta af daglegri neyslu
- þroska með sér virðingu fyrir lífi, náttúru og umhverfi
- vera forvitinn um umhverfi sitt og náttúru
Nánari upplýsingar á námskrá.is