Grunnur
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum er lagt upp með að nemendur komi að sem flestum þáttum við gerð stuttmyndar s.s. hugmyndavinnu, handritsgerð, leik, útvegun búninga, leikmynd og tæknivinnu, þ.e. klippingu og hljóðsetningu. Kennslan er einstaklingsmiðuð og því munu nemendur fást við ólík verkefni sem henta hverjum og einum og viðfangsefni miðuð við getu og þroska nemenda.
Þekkingarviðmið
- hlutverki hugmyndavinnu í stuttmyndagerð
- hlutverki handritsgerðar í stuttmyndagerð
- hlutverki „storyboard“ í stuttmyndagerð
- virkni myndbandstökuvélar
- klippingu kvikmynda
- texta mynd
- hljóðvinnslu
Leikniviðmið
- gera „storyboard“
- taka upp senur á einfalda myndbandstökuvél
- klippa saman mynd með einföldum aðferðum í klippiforriti
- vinna hljóð inn á mynd
- setja texta inn á mynd
Hæfnisviðmið
- gera stuttmynd
- taka þátt í stuttmyndakeppni starfsbrauta framhaldsskólanna
Nánari upplýsingar á námskrá.is