Trésmíði og handavinna
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun handverkfæra og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningum, límingum, pússningu og yfirborðsmeðferðum. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna og tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum.
Þekkingarviðmið
- umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum eins og kostur er
- helstu öryggisþáttum
- vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
- meðferð, notkunarsviði og virkni einstakra hand- og rafmagnsverkfæra
- öryggisreglum einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
- meðferð og notkun einstakra límtegunda
- grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
- öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð svo sem lakks og annarra efna
Leikniviðmið
- nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
- nota algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
- nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
- bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
Hæfnisviðmið
- smíða hluti eftir eigin vali og getu eins og kostur er
Nánari upplýsingar á námskrá.is