UPPT1GR04 - Upplýsingatækni grunnur sérnám

Grunnur

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum er nemendum kennt að nýta sér tölvu til gagns og ánægju við nám, störf og tómstundir. Megináhersla er á upplýsingaöflun, vinnu og gagnavörslu ásamt því að kynnast hinum ýmsu forritum eftir því sem við á hverju sinni. Þá er nemandi fræddur um þá siðfræði sem gildir á samskiptasíðum netheima og hvað helst beri þar að varast. Nemendur þjálfist í tölvu- og upplýsingalæsi og átti sig á mikilvægi heiðarlegrar og siðlegrar netnotkunar.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum ritvinnslu og frágangi verkefna
  • upplýsingaöflun á netmiðlum
  • heilbrigðum tómstundum í tölvunni
  • óskrifuðum reglum siðfræðinnar á samskiptasíðum netmiðla
  • helstu aðferðum við að setja upp aðgengilegan texta, myndir og kynningar af ýmsu tagi
  • mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun

Leikniviðmið

  • vinna verkefni í ritvinnslu
  • búa til möppur og vista rétt
  • kynna verkefni í ýmsum forritum
  • nota tölvupóst
  • nýta leitarsíður og afla upplýsinga á netinu
  • nýta hin ýmsu leikjaforrit á netinu
  • umgangast samskiptasíður á heilbrigðan hátt
  • vera meðvitaður um þær hættur sem kunna að skapast á samskiptasíðum við fólk sem maður þekkir ekki

Hæfnisviðmið

  • nýta sér tölvuþekkingu til gagns og ánægju í lífinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is