Opinn hugbúnaður
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Markmiðið er að nemendur geti nýtt opinn hugbúnað og forrit sem ætluð eru til verkefna, hugmyndavinnu og heimasíðugerðar. Nemendur þjálfist í tölvu- og upplýsingalæsi og átti sig á mikilvægi heiðarlegrar og siðlegrar netnotkunar.
Þekkingarviðmið
- helstu aðferðum við að setja upp aðgengilegan texta, myndir og kynningar af ýmsu tagi
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
Leikniviðmið
- búa til margskonar kynningar
- vinna með tölvuforrit og hugbúnað
- nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
Hæfnisviðmið
- kynnast tölvuforritum sem nýta má við kynningar af ýmsu tagi
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT sem kenna örugga netnotkun
Nánari upplýsingar á námskrá.is