TÓMS1FF02 - Tómstundir félagsfærni sérnám

Félagsfærni

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áhersla er annars vegar lögð á að kenna nemendum ýmis spil og efla þar með áhuga þeirra á þess konar tómstundum. Hins vegar er áherslan á að efla félagsfærni nemenda. Með því að læra að spila ýmis ólík spil má þjálfa nemendur í samskiptareglum og í því að vera hluti af hópi þar sem fylgja þarf ákveðnum reglum. Nemendur þurfa að læra að vinna og tapa í spilum og takast á við þær tilfinningar sem fylgja því.

Þekkingarviðmið

  • ýmis konar spilum, s.s. hefðbundnum spilum, borðspilum og skák
  • því að leggja kapal
  • gildi þess að fara eftir settum reglum í spilum

Leikniviðmið

  • spila ýmis konar spil og fara eftir spilareglum sem gilda hverju sinni
  • setja sig í spor annarra
  • taka tapi

Hæfnisviðmið

  • spila sér til afþreyingar
  • njóta þess að spila við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is