Tímahugtök
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Höfuð markmið með áfanganum er að efla kunnáttu nemanda á klukku og samhengi tímatals. Þá er einnig fjallað um helstu hátíðar- og tyllidaga. Í kennslunni er stuðst við kennsluklukku, sérútbúið efni og almanak.
Þekkingarviðmið
- klukku
- samhengi daga, vikna, mánaða, árs og aldar
- hátíðar- og tyllidögum
Leikniviðmið
- lesa af klukku
- kunna fjölda daga í viku
- kunna fjölda daga og vikna í mánuði
- kunna fjölda daga, vikna og mánaða í ári
- kunna skil á einni öld
- kunna skil á hátíðar- og tyllidögum og ástæðu þeirra
Hæfnisviðmið
- vera stundvís í lífi og starfi
- vera meðvitaður í tíma og rúmi
Nánari upplýsingar á námskrá.is