Trésmíði
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða í því skyni að búa þá undir þátttöku í atvinnulífinu. Áhersla er lögð á sjálfstæði og skipulagningu í vinnubrögðum. Einnig er áhersla lögð á að efla ábyrgð og frumkvæði í starfi.
Þekkingarviðmið
- vinnuaðstæðum sem tilheyra ákveðnum störfum s.s. tæki og áhöld
- eigin verkhæfni við ákveðin störf
- eigin styrk- og veikleikum til að eiga betra með að velja sér starf við hæfi
- umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum eins og kostur er
- helstu öryggisþáttum
- vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi
- meðferð, notkunarsviði og virkni einstakra hand- og rafmagnsverkfæra
- öryggisreglum einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
- meðferð og notkun einstakra límtegunda
- grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
- öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð svo sem lakks og annarra efna
Leikniviðmið
- viðhafa skipulögð vinnubrögð
- viðhafa sjálfstæð vinnubrögð
- vinna eftir fyrirmælum
- varast hættur sem fylgja viðkomandi starfi
- tileinka sér sem bestan vinnuhraða ásamt úthaldi og einbeitingu
- nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
- nota algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
- nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
- bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
Hæfnisviðmið
- auka vinnufærni sína
- takast á við störf á almennum vinnumarkaði
- njóta þess að sinna verkum sínum
- sýna ábyrgð og frumkvæði í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is