STAR1VS02 - Starfsnám vinnustaðir sérnám

Vinnustaðir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í þessum áfanga er áhersla lögð á að finna störf á almennum vinnumarkaði eða á starfsþjálfunar-stöðum fyrir nemendur í því skyni að búa þá undir þátttöku í atvinnulífinu. Áhersla er lögð á sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum. Einnig er áhersla lögð á að efla ábyrgð og frumkvæði í starfi. Kynningar og starfsþjálfun er skipulögð eftir óskum og þörfum nemenda og forráðamanna þeirra og mögulega í samvinnu við starfsráðgjafa, vinnumiðlanir og aðrar þær stofnanir er málið varðar.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi aðstæðum á vinnumarkaði
  • vinnuaðstæðum sem tilheyra ákveðnum störfum s.s. tæki og áhöld
  • eigin verkhæfni við ákveðin störf
  • eigin styrk- og veikleikum til að eiga betra með að velja sér starf við hæfi

Leikniviðmið

  • viðhafa skipulögð vinnubrögð
  • viðhafa sjálfstæð vinnubrögð
  • vinna eftir fyrirmælum
  • varast hættur sem fylgja viðkomandi starfi
  • hafa samskipti við samstarfsfólk og stjórnendur
  • tileinka sér sem bestan vinnuhraða ásamt úthaldi og einbeitingu

Hæfnisviðmið

  • auka vinnufærni sína
  • takast á við störf á almennum vinnumarkaði
  • njóta þess að sinna verkum sínum
  • sýna ábyrgð og frumkvæði í starfi
  • þekkja réttindi sín á vinnumarkaði
  • gera sér grein fyrir skyldum sínum á vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is