Fullorðinshlutverkið
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á samspil einstaklings og umhverfis og þá ábyrgð sem fylgir því að verða fullorðinn. Farið er yfir þær breytingar sem verða við það að hætta í skóla og skoðað hvað getur tekið við. Lagt er upp með að nemendur skilji hvað það þýðir fyrir þá að flytjast að heiman, að stunda tómstundir o.fl. Fjallað er um sjálfstæði, virðingu og ábyrgð á margvíslegan hátt þannig að nemendur fái sem bestan skilning á þessum hugtökum og geti nýtt þann skilning í daglegu lífi sínu.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum og aðferðum er tengjast fjármálum og skipulagningu þeirra
- hugtökum sem tengjast siðferðilegri hegðun
- helstu réttindum, skyldum og ábyrgð meðborgara í samfélaginu er lúta að lýðræði, jafnrétti og sjálfbærni
- grundvallar öryggismálum á heimili, í skóla og á vinnustöðum
- málefnum neytenda og neytendavernd í einföldustu mynd
- gildi tómstunda
- gildi heilbrigðs lífernis
- ólíkum búsetuformum
- gildi þess að læra meira
Leikniviðmið
- skipuleggja og taka ábyrgð á eigin fjármálum ef kostur er
- meta eigið siðferði og annarra eins og kostur er
- greina hvenær og hvar öryggismál þurfa að vera í lagi
- greina hvenær brotið er á honum í neytendamálum
- leita sér upplýsinga um tómstundir, námskeið o.s.frv. með fyrir hugaða þátttöku í huga
Hæfnisviðmið
- setja sér fjárhagsleg markmið og vera læs á fjármál sín eins og kostur er
- tryggja einfaldasta öryggi á eigin heimili
- taka rökstudda afstöðu til siðferðislegra álitamála eins og kostur er
- vera þátttakandi í lýðræðissamfélagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is