Heilsa og næring
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið með áfanganum er að nemandi öðlist þekkingu til að geta tekið ábyrgð á eigin heilbrigði. Höfuðmarkmið með kennslunni er að nemendur séu meðvitaðir um heilbrigða næringu og eðlilega orkuþörf líkamans.
Þekkingarviðmið
- undirstöðu almennrar næringarfræði
- neyslu hollrar og fjölbreyttrar fæðu
- nauðsynlegum vítamínum og bætiefnum
- tengslum hreyfingar og hollrar næringar
- helstu efnum sem líkaminn er byggður úr
- orkugjöfum og orkuþörf líkamans
Leikniviðmið
- greina á milli hollrar og óhollrar fæðu
- reikna út næringarþörf sína
- kanna eigin neysluvenjur
- lesa á umbúðir og meta næringargildi matvæla
Hæfnisviðmið
- tileinka sér holla lífshætti
- taka rökstudda afstöðu til næringarmála í daglegri umræðu
- gera sér grein fyrir eigin næringarþörf eins og kostur er
- geta sett saman heilsusamlegar máltíðir
- tengja næringarfræðina við daglegt líf og sjá notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is