NÁTT1HA02 - Náttúrufræði hafið sérnám

Hafið

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum er kennt um lífríki í hafinu umhverfis landið. Lögð er áhersla á að nemendur þekki algengar fiskitegundir og sjávardýr og lifnaðarhætti þeirra. Þá fá nemendur fræðslu um nýtingu sjávarafurða.

Þekkingarviðmið

  • völdum fiskitegundum og lifnaðarháttum þeirra
  • völdum hvalategundum og lifnaðarháttum þeirra
  • selum og lifnaðarháttum þeirra
  • völdum krabbadýrum og skelfiski
  • einkennandi sjávargróðri
  • afurðum sjávarfangs

Leikniviðmið

  • greina í sundur algengar fiskitegundir
  • greina algengar tegundir krabba og skelfisks
  • kunna skil á átu og svifi og tilgangi þess í hafinu
  • kunna skil á þörungum, söli, og þangi
  • greina mismunandi afurðir sjávarfangs frá afurðum annarra dýra

Hæfnisviðmið

  • vera upplýstur um lífríkið í hafinu umhverfis Ísland og nýtingu sjávarafurða til manneldis
Nánari upplýsingar á námskrá.is