LÍFS1FU02 - Lífsleikni fundarsköp sérnám

Fundarsköp

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn er ætlaður til að efla og styrkja félagsfærni nemenda. Félagsfærni er félagslega viðurkennd lærð hegðun sem gerir manneskjunni kleift að eiga árangursrík samskipti við aðra og að forðast félagslega óásættanleg viðbrögð. Nemendur stinga sjálfir upp á málefnum sem þeim finnst nauðsynlegt að taka fyrir í hverjum tíma. Þannig eru þeir gerðir virkir þátttakendur í mikilvægum ákvarðanatökum og skoðanaskiptum. Tímarnir eru hóptímar og gera nemendur verkefni og nota m.a. leikræna tjáningu til að æfa sig í félagsfærni.

Þekkingarviðmið

  • félagslegri hegðun eins og kostur er
  • óskrifuðum reglum í félagslegum samskiptum
  • eigin ábyrgð í samskiptum við annað fólk
  • styrkleikum sínum og hæfileikum
  • eigin tilfinningum og annarra í samskiptum
  • eigin sjálfsmynd
  • jákvæðum samskiptum

Leikniviðmið

  • tjá sig munnlega
  • hlusta á aðra
  • tengjast félögum
  • vinna með öðrum
  • greina í sundur tilfinningar og hafa stjórn á þeim
  • haga sér vel við ýmis tækifæri sem krefjast félagslegrar innsýnar
  • setja sig í spor annarra
  • greina eigin ábyrgð og skyldur
  • vinna með öðrum

Hæfnisviðmið

  • geta átt í jákvæðum og innihaldsríkum samskiptum við annað fólk
  • finna nýjar og viðeigandi aðferðir til að leysa vandamál
  • iðka háttvísi
  • bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is