Félagsfærni
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn er ætlaður til að efla og styrkja félagsfærni nemanda. Félagsfærni er félagslega viðurkennd lærð hegðun sem gerir manneskjunni kleift að eiga árangursrík samskipti við aðra og að forðast félagslega óásættanleg viðbrögð. Nemendur með góða félagsfærni eru líklegri til að eiga frumkvæði að samskiptum, viðhalda þeim og aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Þeir læra að kortleggja styrkleika sína og hæfileika, þekkja eigin tilfinningar og hafa stjórn á þeim.
Þekkingarviðmið
- félagslegri hegðun eins og kostur er
- óskrifuðum reglum í félagslegum samskiptum
- eigin ábyrgð í samskiptum við annað fólk
- styrkleikum sínum og hæfileikum
- eigin tilfinningum og annarra í samskiptum
- eigin sjálfsmynd
Leikniviðmið
- tengjast félögum
- vinna með öðrum
- greina í sundur tilfinningar og hafa stjórn á þeim
- haga sér við ýmis tækifæri sem krefjast félagslegrar innsýnar
- setja sig í spor annarra
- greina eigin ábyrgð og skyldur
Hæfnisviðmið
- geta átt í jákvæðum og innihaldsríkum samskiptum við annað fólk
- finna nýjar og viðeigandi aðferðir til að leysa vandamál
- iðka prúðmennsku og háttvísi
- bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is