LEIK1TJ02 - Leiklist tjáning sérnám

Tjáning

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Nemendur kynnast grunnþáttum leiklistar og fá innsýn inn í það hvernig leikrit verður til. Farið er í einfaldar æfingar sem opna fyrir sköpunarkraftinn og þjálfa nemendur í að koma fram, vinna saman og hlusta/horfa hver á annan. Farið er í undirstöðutriði raddbeitingar, hópleiki og spuna.

Þekkingarviðmið

  • hvað þarf til að setja á svið leikverk
  • undirstöðuatriðum í spuna
  • ólíkum hópleikjum

Leikniviðmið

  • leika einfalda leiksenu
  • setja sig í spor persónu í gegnum spuna
  • vinna í hóp

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í hópvinnu
  • setja sig í spor annarra
  • skilja hvað þarf til að leika leiksenu
Nánari upplýsingar á námskrá.is