KYFR1DU02 - Kynjafræði drengir og unglingsárin sérnám

Drengir og unglingsárin

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í þessum áfanga er fjallað um flest það sem viðkemur strákum og unglingsárunum. Meðal annars er fjallað um líkamann, kynþroskann, hreinlæti, snertingu, fjölskyldur, sjálfstraust og sjálfsmynd, fyrirmyndir og staðalímyndir, vináttu og ást.

Þekkingarviðmið

  • ólíkum aðstæðum stráka, upplifunum og lífsreynslu
  • hvað einkennir gott sjálfstraust
  • „reglum“ um snertingu og einkasvæði hreinlæti
  • útlitsdýrkun og hvað hún hefur í för með sér
  • mikilvægi vinasambanda
  • sambandi tveggja einstaklinga
  • kynþroska hjá strákum og stelpum
  • ástinni eins og kostur er
  • undirstöðuþáttum í kynheilbrigði

Leikniviðmið

  • þekkja einkasvæði líkamans
  • greina í sundur góðar og slæmar tilfinningar
  • tryggja eigið öryggi
  • greina eigin framkomu við aðra
  • taka tillit til ólíkra aðstæðna einstaklinga
  • taka þátt í umræðum um „strákamál“

Hæfnisviðmið

  • bera virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum
  • lifa sem hamingjusamur einstaklingur með heilbrigða kynhegðun
Nánari upplýsingar á námskrá.is