ÍSLE1OM02 - Íslenska orðmyndir sérnám

Orðmyndir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið í lok áfangans er að nemandi þekki og geti lesið og skrifað þriggja til fimm stafa orð og geti parað orð og mynd. Áhersla er á að kenna grunnþætti í lestri, tengingu stafa og lesturs á einföldum orðum og einstakar orðmyndir. Einnig er áhersla lögð á að nemendur örvist í allri málnotkun og bæti orðaforða sinn og hugtakaskilning.

Þekkingarviðmið

  • að tengja rétt orð við mynd
  • að lesa/þekkja orð
  • að þekkja stafina
  • að skrifa einföld orð ýmist með eða án fyrirmyndar
  • að lesa stutta frásögn og algeng orð
  • að nota talað mál eins og kostur er

Leikniviðmið

  • þekkja alla stafina og geta skrifað þá
  • skrifa og lesa einföld orð
  • skoða bækur að eigin frumkvæði

Hæfnisviðmið

  • lesa og skilja einföld orð
  • tjá sig meira
  • þekkja einföld orð og geta tengt við mynd
  • nota talað mál eins og kostur er
  • auðga orðaforða sinn og bæta hugtakaskilning
  • taka þátt í tjáskiptum
Nánari upplýsingar á námskrá.is