Krafla
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið áfangans er að styrkja sjálfstraust nemenda í félagslegum samskiptum með því að auka hugtakaskilning og orðaforða þeirra. Stuðst er við orðaspilið Kröflu þar sem reynir á orðaforða og nemendur takast einnig á við þær tilfinningar sem að fylgja því bæði að vinna og tapa.
Þekkingarviðmið
- hvernig góður orðaforði og félagslegur þroski getur eflt hann sem persónu í samskiptum við annað fólk
Leikniviðmið
- vinna með öðrum
- tjá sig með skýrum, kurteisum hætti
- fara að settum reglum
- taka sigri og ósigri
Hæfnisviðmið
- hlusta og nýta sér upplýsingar, fróðleik og skemmtun í töluðu máli
- efla félagsleg samskipti þar sem tjáning fer fram með skýrum og kurteisum hætti og er undirstaða sjálfsöryggis, sjálfstrausts og vellíðunar í lífinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is