HEFR1SN02 - Heimilisfræði snarl og nesti

Snarl og nesti

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á að læra að búa til snarl, snakk og nesti.

Þekkingarviðmið

  • grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku og bakstur
  • hollu mataræði

Leikniviðmið

  • fara eftir uppskriftum
  • nota helstu heimilistæki við eldamennsku
  • greina á milli holls og óholls snakks

Hæfnisviðmið

  • taka til nesti fyrir styttri ferðir
  • búa til eða taka til snakk fyrir gesti
  • búa til hollt snarl
  • auka sjálfstæði sitt og færni við matargerð
  • nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um bakstur og uppskriftir
  • viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
Nánari upplýsingar á námskrá.is