Heimshornaflakk
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á að nemendur læri að búa til þekkta, einfalda rétti frá ýmsum löndum.
Þekkingarviðmið
- þekktum réttum frá ýmsum löndum
- grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku og bakstur
- hollu mataræði
Leikniviðmið
- fara eftir uppskriftum
- nota helstu heimilistæki við eldamennsku
Hæfnisviðmið
- elda einfalda, þekkta rétti frá ýmsum löndum
- auka sjálfstæði sitt og færni við matargerð
- nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um bakstur og uppskriftir
- viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
Nánari upplýsingar á námskrá.is