Hollusta og velferð
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á hollustu og því verða eldaðir einfaldir grænmetisréttir, bakað úr grófu korni o.s.frv.
Þekkingarviðmið
- hollu mataræði og heilsusamlegum eldunaraðferðum
- grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku og bakstur
Leikniviðmið
- greina á milli hollra og óhollra rétta
- fara eftir uppskriftum
- elda einfaldan heimilismat
- nota helstu heimilistæki við eldamennsku
- leggja á borð
- vaska upp, þurrka og ganga frá eftir máltíð
- viðhafa góða borðsiði
Hæfnisviðmið
- elda einfalda grænmetisrétti
- baka úr grófu korni
- auka sjálfstæði sitt og færni við matargerð
- nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um bakstur og uppskriftir
- viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
Nánari upplýsingar á námskrá.is