kvikmyndaáfangi
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Markmið áfangans er að nemendur fái innsýn í heim kvikmyndanna og læri ensku í gegnum þær. Áhersla er lögð á að kenna nemendum að fylgja þræði í kvikmyndinni þannig að þeir geti sagt frá eða unnið úr honum á annan hátt. Lagt er upp með að nemendur þjálfist í gagnrýnni hugsun og færni í tjáskiptum og rökræðum á ensku eins og kostur er.
Þekkingarviðmið
- ólíkum viðhorfum og gildum í enskumælandi löndum og hvernig þau móta menninguna
- heimi kvikmyndanna eins og kostur er
Leikniviðmið
- skilja mál sem er talað með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður
- skilja texta kvikmynda og myndmál eins og kostur er
- rökræða, skiptast á skoðunum um kvikmyndir
- skrifa kvikmyndarýni á ensku
- meti upplýsingar á gagnrýninn hátt
Hæfnisviðmið
- njóta kvikmynda
- öðlast færni í tjáskiptum og rökræðu
- bera ólík gildi og viðhorf saman við eigin menningu
Nánari upplýsingar á námskrá.is