Hlustun og tjáning
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Unnið er að því að rifja upp og byggja ofan á þá kunnáttu og færni sem nemendur hafa. Í áfanganum er annars vegar lögð áhersla á hlustun til að nemendur þjálfist í að skilja enskt talað mál. Hlustunar- og myndefni er notað sem efniviður í málæfingar og ritun. Hins vegar er áhersla lögð á munnlega tjáningu til að nemendur þjálfist í að tala ensku og rökstyðja skoðanir sínar.
Þekkingarviðmið
- hagnýtum orðaforða daglegs máls
- munnlegri notkun tungumálsins
Leikniviðmið
- taka þátt í samræðum um einfalda hluti daglegs lífs
- tjá sig skýrt og hnökralaust um undirbúið efni
- taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
- ná inntaki í einföldum töluðum setningum um kunnugleg efni
- ná inntaki í einföldum dægurlagatextum á ensku
Hæfnisviðmið
- leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður
- taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu á eins skýran hátt og mögulegt er
- geta nýtt fjölmiðla sér til gagns
- skilja sér til gagns einfalt daglegt talmál
Nánari upplýsingar á námskrá.is