Bóklegt starfsnám
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Stefnt er að því að nemendur fái fræðslu um helstu atvinnuvegi á Íslandi og hin ólíku störf sem bjóðast. Áhersla er lögð á að nemendur velti fyrir sér eigin áhuga og styrk í tengslum við starfsundirbúning. Nemendur kynnast þeim almennu reglum, bæði skrifuðum sem óskrifuðum, sem gilda í mannlegum samskiptum við samstarfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum. Frætt er um réttindi og skyldur starfsmanna sem gilda á almennum vinnumarkaði og einnig á vernduðum vinnustöðum. Fjallað verður um stéttarfélög og hlutverk þeirra í samfélaginu.
Þekkingarviðmið
- helstu atvinnuvegum landsins
- ólíkum störfum
- réttindum og skyldum sem gilda á almennum vinnumarkaði
- hlutverki stéttarfélaga
- mikilvægi þess að stunda vinnu og vera þannig þátttakandi í samfélaginu
- mikilvægi stundvísi til vinnu
- einföldum launaseðlum
Leikniviðmið
- greina eigin áhuga svo og sterkar og veikar hliðar í tengslum við starfsundirbúning
- greina þau atriði sem taka ber tillit til við starfsval
- viðhafa kurteisi við samstarfsfólk
- koma fram í atvinnuviðtölum
- lesa grundvallaratriði út úr launaseðlum
Hæfnisviðmið
- takast á við störf á almennum vinnumarkaði
Nánari upplýsingar á námskrá.is