ÍÞRG3ÚT04 - Útivist

Útivist

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn fá innsýn í þá líkams og heilsurækt sem stunduð er utandyra / útivist. Áhersla er á nemendur kynnist og láti á reyna þær fjölmörgu aðferðir sem hægt er að nota til að rækta líkama og sál utan dyra. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð. Stefnt er að því að nemendur fari í eina langa ferð (gönguferð) sem reynir á undirbúning (ásamt styttri gönguferðum), búnað og viljastyrk ásamt því að kynnast nokkrum möguleikum til útivistar tengda jaðarsporti.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu útivist og öðrum sem tengjast henni ásamt gildi hennar fyrir líkama og sál
  • skipulagningu og undirbúning gönguferðar í náttúru Íslands
  • fjölbreytileika útivistar - jaðarsport
  • gildi góðrar leiðsagnar og hlutverki leiðsögumanns
  • öryggisatriðum er varða ferðalög og útivist

Leikniviðmið

  • leiðbeina og bera ábyrgð á hóp
  • undirbúa og skipuleggja gönguferðir
  • meta eigin getu og styrk til fjölbreyttrar útivistar
  • skipuleggja og nýta frítíma til útivistar
  • leiðbeina og bera ábyrgð á hóp

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja atburð fyrir lítinn hóp
  • stjórnað og borið ábyrgð á hóp
  • lesa í landslag og meta öryggi við ástundun útivistar
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
  • skilja fjölbreytileika í starfi leiðsögumanna
  • ástunda sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is