Líkamsrækt
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í líkamsstyrkingu. Áhersla er á mismunandi aðferðir við líkamsstyrkingu eftir aldri og hver tilgagur styrkingarinar er. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í hvernig á að byggja upp líkamsstyrk og mikilvægi hans samhliða öðrum íþróttum.
Þekkingarviðmið
- ýmsum aðferðum við líkamsrækt
- hvernig á að byggja upp styrk hjá ungum íþróttamönnum
- tækni við líkamsrækt
- skipulagningu líkamsræktar
- mismunandi aðferðum
Leikniviðmið
- leiðbeina byrjendum í líkamsrækt
- nota líkamsstyrkingu í skólaíþróttum
- leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
Hæfnisviðmið
- skipuleggja íþróttatíma í almenni líkamsrækt
- stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna
Nánari upplýsingar á námskrá.is