ÍÞRG3KN04 - Knattspyrna

knattspyrna

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu geti jafnframt borið ábyrgð á hópi. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í knattspyrnu
  • hvernig á að leiðbeina börnum í knattspyrnu
  • kennslu tækniæfinga í knattspyrnu
  • skipulagningu knattspyrnuþjálfunar
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í knattspyrnu

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í knattspyrnu
  • nota knattspyrnu sem skólaíþrótt
  • spila knattspyrnu

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í knattspyrnu
  • stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is