blak
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki og geti borið ábyrgð á hópi barna. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
- leikreglum í blaki
- hvernig á að leiðbeina börnum í blaki
- kennslu tækniæfinga í blaki
- skipulagningu blakþjálfunar
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki
Leikniviðmið
- leiðbeina byrjendum í blaki
- nota blak sem skólaíþrótt
- spila blak
- leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
Hæfnisviðmið
- skipuleggja íþróttatíma í blaki
- stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna
Nánari upplýsingar á námskrá.is