badminton
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í badminton Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
- leikreglum í badmintoni
- hvernig á að leiðbeina börnum í badmintoni
- kennslu tækniæfinga í badminton
- skipulagningu badmintonþjálfunar
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í badminton
Leikniviðmið
- leiðbeina byrjendum í badminton
- nota badminton sem skólaíþrótt
- spila badminton
- leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
Hæfnisviðmið
- skipuleggja íþróttatíma í badminton
- stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna
Nánari upplýsingar á námskrá.is