LEIK2LS05 - Leikstjórinn

leikstjórinn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur:
Nemendur kynnast hugmyndum Brechts og Stanislavskis um leiklist bæði í gegnum sögu og textavinnu. Nemendur bera saman tíðarandann, menninguna, viðhorf, gildi og viðmið þessara mismunandi höfunda og læra grunnhugtök frá hverju tímabili fyrir sig. Nemendur læra um hugmyndir þessara frægu kennismiða vestrænnar leiklistar og hvernig þessir leikhúslistamenn notuðu hugmyndir sínar í framkvæmd. Unnið er með hlutverk leikstjórans í áfanganum og nemendur skiptast á að leikstýra hver öðrum.

Þekkingarviðmið

  • hugmyndum Brechts og Stanislavskis um leikhús
  • hvað Kerfi Stanislavskis er og hvernig hægt er að nýta það við senuvinnu
  • hvar áhrifa Brechts og Stanislavskis gætir í leikhúsi í dag
  • tíðaranda, menningu, viðhorfum og gildum í leikhúsi Brechts og Stanislavskis
  • hvað „Framandgerving“ er
  • hvað „Kerfið“ er

Leikniviðmið

  • vinna stutta leiksenu bæði sem leikstjóri og leikari út frá kenningum og aðferðum bæði Brechts og Stanislavskis
  • miðla hugmyndum Brechts og Stanislavskis um leikhús
  • greina senur og atriði úr leikriti út frá ,,Kerfi
  • greina hvar Framandgervingu er að finna í leikhúsi í dag og hvernig hún hefur þróast
  • nota tungumál ,,Kerfisins
  • bera saman kenningar Brechts og Stanislavskis við nútímaleikhús

Hæfnisviðmið

  • rökstyðja hugmyndir sínar um leikhús nútímans
  • bera saman og greina leikhús í dag við leikhús Brechts og Stanislavskis
  • útskýra hugmyndir Brechts um leikhús
  • útskýra hugmyndir Stanislavskis um leikhús
  • miðla í ræðu og riti hversu mikil áhrif tíðarandinn getur haft á skapandi listamenn
  • nota orðfæri ,,Kerfisins
  • bæta öryggi sitt sem leikari í leiksenum
  • setja eigin hugmyndir og vinnu í samhengi við kenningar Brechts og Stanislavskis
Nánari upplýsingar á námskrá.is