MÁLV2GR05 - Grunnáfangi

grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: TEIK1GR05 og LITA1LT05
Nemendur læra að vinna á markvissan hátt með vatnsliti og akrýlliti. Farið verður dýpra í litafræði og blöndun lita en gert var í LITA2MT05 og nemendur þjálfa málun út frá breytilegum tónum, blæ og ljósmagni, m.a. með að vinna tvívíð óhlutbundin verk með áherslu á form, liti og myndbyggingu. Nemendur mála því næst tvívíð verk eftir fyrirmyndum, hlutum, manneskjum og umhverfi og styðjast einnig við eigin skissur og hugmyndir til að túlka málverk á persónulegan hátt. Nemendur skoða verk innlendra og erlendra listamanna sem vinna með málverk og þjálfast í að greina verk þeirra með tilliti til litanotkunar og vægi litarins í myndbyggingu. Íslenskir listmálarar verða kynntir, bæði í tímum og með sýningaferðum

Þekkingarviðmið

  • grunntækni við vatnslita- og akrýlmálun
  • hvernig málverk breytist út frá breytingum í tónum, blæ, ljósmagni og myndbyggingu
  • hvernig myndlistarmenn vinna undirbúningsvinnu fyrir endanlegt málverk og hvernig þeir nota þætti eins og mismunandi pensilskrift og litaskala til að sýna dýpt í mynd og mismunandi myndbyggingu

Leikniviðmið

  • mála með vatnslitum eftir mismunandi fyrirmyndum
  • mála með akrýllitum eftir mismunandi fyrirmyndum

Hæfnisviðmið

  • mála verk með vatnslitum og akrýllitum bæði eftir fyrirmyndum og eigin skissum og hugmyndaheimi
  • nota verk listamanna sem innblástur í gerð eigin málverka
  • greina hvernig ýmsir myndlistarmenn vinna með litina í málverkum sínum
Nánari upplýsingar á námskrá.is