HÖNS2HI05 - Hönnun og iðnaður

hönnun, iðnaður

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur um samgöngu- og iðnbyltinguna á 19. öld og hvernig þær breytingar höfðu áhrif á þróun hönnunar í tengslum við listiðnaðarfélög, menntun, fyrirtæki og fjöldaframleiðslu í hinum vestræna heimi. Gerð er grein fyrir helstu tækninýjungum sem urðu í kjölfar þessara breytinga og þeirri aukningu sem varð á framboði á vöru, farartækja og húsnæðis. Lögð er áhersla á þær hönnunarstefnur og stíla sem höfðu hvað mest áhrif á hönnun manngerðs umhverfis. Gerð er grein fyrir helstu atburðum og áhrifavöldum tímabilsins og hvernig það hafði áhrif á stefnur og strauma í hönnun. Lögð er sérstök áhersla á samanburð við Ísland og hvernig atburðir, stefnur og straumar hafa haft áhrif á þróun hönnunar hérlendis. Kynnt eru áhrif endurnýtingar og verndunar umhverfis á hönnun.

Þekkingarviðmið

  • hvaða áhrifum samgöngu- og iðnbyltingar hafði á þróun hönnunar
  • helstu hönnuðum, stefnum og straumum tímabilsins
  • hvernig tækninýjungar og samfélagslegir viðburðir hafa á þróun manngerðs umhverfis
  • tengslum íslenskrar og erlendrar hönnunar
  • hvernig stílar í fatnaði, húsgögnum, húsmunum, byggingum o.fl. haldast í hendur
  • hvernig framleiðsla og markaðsgreining hefur áhrif á þróun í hönnun
  • hvaða áhrif hönnun hefur á hið daglega líf okkar
  • mikilvægi endurnýtingar og umhverfisverndar í hönnun framtíðarinnar
  • þekkja starfs-, fyrirtækja- og menntunarumhverfi hönnunar

Leikniviðmið

  • greina orsökir, afleiðingar og áhrif sem iðnbyltingin hafði á lifnaðarhætti , manngert umhverfi og hönnun í hinum vestræna heimi og hérlendis
  • skilja mun á frumvinnslu, fullvinnslu og vélvæðingu í iðnaði
  • gera sér grein fyrir tengslum íslenskrar og erlendrar hönnunar á tímabilinu
  • gera sér grein fyrir rannsóknargildi hönnunar þ.e. að skapa þörf og leita lausna
  • skilja að endurnýting og umhverfisvernd er stór þáttur í hönnunarstefnum framtíðarinnar
  • upplifa hönnun með fjölbreyttri upplýsingaöflun og viðtölum við hönnuði og handverksfólk
  • ásamt því að sækja viðburði og sýningar

Hæfnisviðmið

  • gera sér grein fyrir áhrifum samgöngu- og iðnbyltingarinnar
  • skilja áhrif tækninýjunga og viðburða á þróun hönnunar
  • geta borið saman mismunandi stefnur og strauma í hönnun
  • sjá samsvörum í stílum á fatnaði, húsgögnum, húsmunum, byggingum o.fl. á tímabilinu
  • skilja hvernig þróun í hönnun helst í hendur við eftirspurn, framleiðslu og markaðsfærni
  • sjá að hlutverk hönnunar er að skapa þörf og leita leiða til lausna
  • gera sér grein fyrir að hönnun snýst um rannsóknir á þörfum og lausnum til að gera veröldina sem við lifum í auðveldari og aðgengilegri
  • vera meðvitaðri um mikilvægi endurnýtingar og umhverfisvænnar hönnunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is